Skilmálar
1) Leiga - umsóknir
Allir geta sótt um leiguíbúðir hjá Vallarvinum.
Með umsókninni þarf að fylgja lánshæfismat
frá Credit info. Sé þessum gögnum ekki skilað inn með umsókn, er umsókn ekki
tekin gild. Vallarvinir ehf áskilur sér rétt til þess að hafna umsókn um
leiguhúsnæði ef aðili er á vanskilaskrá Credit info og á vanskilaskrá Vallarvina.
Hægt er að sækja um lánshæfismat frá Credit info hér:
https://www.creditinfo.is/mittcreditinfo/lanshaefismat.aspx
2) Úthlutun íbúða
Eftir að búið er að fara yfir umsókn er haft samband við umsækjanda og hann boðaður í viðtal. Nokkrum dögum eftir viðtalið fær umsækjandi tölvupóst þess efnis hvort umsókn hefur verið samþykkt eða ekki. Ef umsækjandi er samþykktur er honum boðið að koma og skoða eignina.
Eftir skoðunina hefur umsækjandi sólahring til þess að hafa samband við Vallarvini ehf til þess að staðfesta hvort hann ætli að leigja eignina eða ekki. Ef umsækjandi hefur ekki samband fyrir tilsettan tíma er litið svo á að hann ætli ekki að leigja og er íbúðinni úthlutað til annars umsækjanda.
Kostnaður sem umsækjandi þarf að leggja út við öflun umbeðinna gagna verður ekki endurgreiddur af hálfu Vallarvina.
3) Leigutími og umsýslugjald.
Einungis
er gerður skriflegur tímabundinn leigusamningur til 12 mánaða.
Tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða
tilkynningar af hálfu aðila. Leigjandi
getur endurnýjað leigusamninginn óski hann eftir því, svo framarlega sem að
ekki sé um vanefndir leigjanda að ræða skv. húsaleigulögum og/eða leigusamning.
Í upphaf hverrar leigu greiðir leigjandi umsýslugjald að fjárhæð 15.000 kr. fyrir hverja leigða íbúð.
Innifalið í umsýslugjaldinu er:
· Úttektarskýrsla við afhendingu og skil á leiguíbúð.
· Vinna við gerð leigusamnings og fylgigagna.
Umsýslugjald endurgreiðist ekki að leigutíma loknum.
4) Greiðsluskilmálar og trygging.
Vallarvinir
gera þá kröfu um að leigjandi leggji fram tryggingu fyrir efndum á
leigusamningi, þ.e. fyrir leigugreiðslum og skaðabótum vegna tjóns á hinu
leigða sem leigjandi ber ábyrgð á
skv. ákvæðum húsaleigulaga nr. 36/1994 eða almennum reglum.
Farið er fram á tryggingu sem nemur tveggja mánaða leigu. Greiða þarf
tryggingafé á reikning Vallarvina áður en skrifað er undir leigusamning og
eignin er afhent.
Leiga skal ávallt greiðast fyrsta hvers mánaðar. Ef gjalddaga leigu ber upp á almennan frídag skal hann vera næsti virki dagur þar á eftir.
5) Uppsögn áður en leigutíma samkvæmt leigusamning lýkur / áframhaldandi leiga.
Tímabundnum
leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar af
hálfu aðila. Tímabundnum leigusamningi verður ekki slitið með uppsögn á
umsömdum leigutíma. Þó er heimilt að semja um að segja megi slíkum samningi upp
á grundvelli sérstakra forsendna, atvika eða aðstæðna enda sé ekki fjallað um
viðkomandi forsendur, atvik eða aðstæður í húsaleigulögum og skulu þau
tilgreind í leigusamningi. Skal slík uppsögn vera skrifleg og rökstudd og skal
gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera að minnsta kosti þrír mánuðir. Sjá nánar 3.
málsgrein 9. greinar og XI. kafla húsaleigulaga: „Lok leigusamnings, uppsögn og
fleira.“
Vilji leigjandi endurnýja leigusamning sinn skal hann tilkynna leigusala það skriflega á netfangið rent@vallarvinir.is og með sannanlegum hætti a.m.k. þremur mánuðum áður en leigusamningurinn rennur út við lok uppsagnarfrests eða við lok umsamins leigutíma. Telji leigusali að leigjandi eigi ekki forgangsrétt af þeim ástæðum er greinir í 2. málsgrein 51. greinar húsaleigulaga skal hann innan 14 daga frá því hann fær tilkynninguna gera leigjanda skriflega og rökstudda grein fyrir sjónamiðum sínum og því hverjar ástæður standi forgangsréttinum í vegi. Að öðrum kosti telst hann að meginreglu una forgangsréttinum. Sjá nánar 4. málsgrein 9. greinar og X. kafla húsaleigulaga: „Forgangsréttur leigjanda.“
6) Ástand hins leigða húsnæðis
Leiguhúsnæði skal, þegar það er afhent leigjanda, vera í því ástandi sem almennt er talið fullnægjandi miðað við fyrirhugaða notkun þess og staðsetningu. Húsnæðið skal við afhendingu vera hreint, rúður heilar, læsingar og rofar virkir, hreinlætis-, hitunar- og heimilistæki sem teljast fylgifé húsnæðis í lagi, sem og vatns- og frárennslislagnir, reykskynjari og slökkvitæki. Þá skal leiguhúsnæði að öðru leyti fullnægja kröfum um brunavarnir sem fram eru settar í lögum og reglugerðum. Húsnæði, sem leigt er til íbúðar, skal fylgja það fylgifé sem var til staðar við sýningu þess sé eigi sérstaklega um annað samið. Leigjandi skal gera skriflegar athugasemdir innan fjögurra vikna frá afhendingu og segja til um hverra úrbóta sé krafist. Leigjandi skal gera leigusala skriflega grein fyrir göllum, sem síðar koma fram á húsnæðinu og voru ekki sýnilegir við venjulega athugun, innan 14 daga frá því hann varð þeirra var. Sjá nánar III. kafla húsaleigulaga: „Ástand hins leigða húsnæðis.“
Að leigutíma loknum skal leigjandi skila húsnæðinu ásamt tilheyrandi fylgifé í sama ástandi og hann tók við því. Sjá nánar XIII. kafla húsaleigulaga: „Skil leiguhúsnæðis.“eigninni.
7) Viðhaldsskyldur leigjanda og Vallarvina ehf. (leigusala)
Leigjandi skal bæta tjón á húsnæðinu eða fylgifé þess, sem verður af völdum hans sjálfs, heimilismanna eða annarra manna sem hann hefur leyft afnot af húsnæðinu eða umgang um það. Leigjanda er skylt að annast á sinn kostnað minni háttar viðhald, svo sem skipti á ljósaperum og rafhlöðum í reykskynjurum og hreinsun niðurfalla.
Leigusali annast allt annað viðhald á hinu leigða, innan húss sem utan. Leigusali annast viðgerðir á gluggum, heimilistækjum sem teljast fylgifé húsnæðis, hreinlætistækjum, læsingum, vatnskrönum, rafmagnstenglum, reykskynjara, slökkvitæki og öðru því er fylgir húsnæðinu ef leigjandi sýnir fram á að bilanir verði ekki raktar til vanrækslu eða yfirsjónar leigjanda eða fólks á hans vegum. Leigusali skal jafnan halda hinu leigða húsnæði í leiguhæfu ástandi, m.a. með því að láta mála húsnæðið og endurnýja gólfefni og annað slitlag með hæfilegu millibili, og viðhalda brunavörnum, eftir því sem góðar venjur um viðhald húsnæðis segja til um. Leigusali skal ætíð bera tjón á hinu leigða, sem er bótaskylt samkvæmt skilmálum venjulegra húseigendatryggingar, þar á meðal sjálfsábyrgð vátryggingartaka samkvæmt skilmálum tryggingarinnar.
Telji leigjandi viðhaldi ábótavant skal hann gera leigusala skriflega grein fyrir því sem hann telur að úrbóta þarfnist og skora á hann að bæta úr því. Sjá nánar IV. kafla húsaleigulaga: „Viðhald leiguhúsnæðis.“
8) Annað
- Gæludýr eru ekki leyft
- Íbúðirnar eru reyklausar